Joshua 14

1Þetta er það, sem Ísraelsmenn fengu að arfleifð í Kanaanlandi, það sem Eleasar prestur, Jósúa Núnsson og ætthöfðingjar kynkvísla Ísraelsmanna úthlutuðu þeim 2með hlutkesti til arfleifðar, eins og Drottinn hafði skipað fyrir meðalgöngu Móse um níu kynkvíslirnar og hálfa. 3Móse hafði gefið tveimur kynkvíslunum og hálfri óðul hinumegin Jórdanar, en levítunum hafði hann eigi gefið óðal meðal þeirra. 4Jósefs synir voru tvær kynkvíslir, Manasse og Efraím, og levítunum gáfu þeir ekki hlut í landinu, heldur aðeins borgir til að búa í og beitilandið, er lá undir þær, handa fénaði þeirra og skepnum. 5Eins og Drottinn hafði boðið Móse, svo gjörðu Ísraelsmenn og skiptu landinu. 6Þá gengu Júda synir fyrir Jósúa í Gilgal, og Kaleb Jefúnneson, Kenisíti, sagði við hann: ,,Þér er kunnugt um, hvað Drottinn sagði við guðsmanninn Móse um mig og þig í Kades Barnea. 7Þá var ég fertugur að aldri, er Móse, þjónn Drottins, sendi mig frá Kades Barnea að kanna landið, og bar ég honum það, er ég vissi sannast. 8En bræður mínir, sem með mér fóru, skelfdu hjörtu lýðsins, en ég fylgdi Drottni Guði mínum trúlega. 9Og þann dag sór Móse og sagði: ,Sannlega skal land það, sem þú steigst fæti á, vera þín eign og sona þinna ævinlega, því að þú fylgdir Drottni Guði mínum trúlega.` 10Og sjá, nú hefir Drottinn látið mig lifa, eins og hann lofaði, í þessi fjörutíu og fimm ár, síðan Drottinn sagði þetta við Móse, meðan Ísrael hefir farið um eyðimörkina, og sjá, nú hefi ég fimm um áttrætt. 11Og enn í dag er ég eins hraustur og þegar Móse sendi mig. Orka mín er enn hin sama og hún var þá til að berjast og til að ganga út og inn. 12Gef mér nú fjalllendi þetta, sem Drottinn talaði um þann dag, því að þú hlýddir sjálfur á þann dag. Anakítar eru þar og stórar, víggirtar borgir. Vera má, að Drottinn veiti mér fulltingi, svo ég fái stökkt þeim burt, eins og Drottinn hefir heitið.`` 13Jósúa blessaði hann og gaf Kaleb Jefúnnesyni Hebron að arfleifð. 14Fyrir því fékk Kaleb Jefúnneson, Kenisíti, Hebron að arfleifð, og er svo enn í dag, sökum þess að hann fylgdi Drottni, Ísraels Guði, trúlega. 15En Hebron hét áður Kirjat Arba, eftir Arba þeim, er mestur var meðal Anakíta. Eftir það létti ófriði af landinu.
Copyright information for Icelandic